Skráningarfrestur rennur út:
Skráningarfrestur rennur út:
Höfundaskólinn
Námið fyrir sjálfstæða rithöfunda
12 mánuðir til að skrifa og gefa út bókina þína
Hvað ertu búin/n að hugsa lengi
um að skrifa?
Stór könnun í Bandaríkjunum sýndi að fjórir af hverjum fimm hafa áhuga á að skrifa bók, töluverður fjöldi byrjar að skrifa en aðeins 3% komast í mark og ná að skrifa bókina sína.
Það er algengt að fólk hugsi árum eða jafnvel áratugum saman um hugmyndina að bók en eitthvað heldur aftur af þeim og þau ná ekki að byrja, eða klára bókina.
Ekki bíða lengur!
Framhaldsnámskeið fyrir þau sem eru tilbúin að láta drauminn rætast
Ég mæli alltaf með því að byrja með smærra verkefni, að skrifa smásögu.
Á námskeiðinu "Sögurnar okkar" lærir þú að skrifa góða smásögu og sagan þín verður gefin út í smásagnasafni með öðrum nemendum á námskeiðinu og þú verður strax útgefinn höfundur!
Á námskeiðinu er lögð áhersla á óhefta tjáningu í rituðu máli. Þátttakendur læra að takast á við og yfirvinna ritstíflur, koma sér í gang með skrifin og ljúka við lítið ritlistarverkefni (smásögu). Jafnframt er í kennslunni farið yfir hefðbundna uppbyggingu smásögu, hvernig hægt er að fá og nota innblástur að sögum og hvernig hægt er að forðast algeng mistök við skrifin. Þátttakendur skila inn verkefnum og fá endurgjöf frá leiðbeinanda og öðrum nemendum. Að lokum er fræðsla um útgáfuferli bóka.
Ef þú ert tilbúin/n í að taka skrifin alvarlega geturðu skráð þig í Höfundaskólann í vetur og lært einnig að skrifa heila bók og gefa hana út.
Kostir þess að fara á framhaldsnámskeið í skrifum:
Þú lærir að skrifa smásögu og jafnvel handrit að heilli bók sem er áhugaverð og skemmtileg aflestrar
---
Aðhald, æfingar og reglulegir skilafrestir sem reka á eftir þér að koma skrifunum í verk
---
Ferlið er brotið niður í skref til að auðvelda þér að vita hvernig þú átt að byrja og klára
---
Þú verður útgefinn rithöfundur!
---
Hvatning frá kennara og öðrum nemendum
---
Rýni á texta sem þú hefur skrifað
---
Kennsla um allar gerðir bóka, bæði skáldskap og annarskonar bækur
---
Þú lærir um möguleika á útgáfu á þinni bók
---

Nánari upplýsingar um Höfundaskólann
Kennt á netinu
Þú getur lært heima hjá þér og þarft ekki að ferðast til að mæta í tíma
Praktískt
Tímarnir eru teknir upp og þú getur lært á þeim tíma sem þér hentar
Lengd námskeiðs
Smásögunámskeið er 5 vikur. Ef þú velur að koma í Höfundaskólann er það 12 mánuðir. Námið hefst 15. september. Þú getur lært heima hjá þér og þarft ekki að ferðast til að mæta í tíma
Facebook hópur
Lokaður hópur fyrir nemendur, allt efni er vistað og hægt að finna eftir að námskeið lýkur.
Hvatning
Kennslan miðar við að hvetja þig áfram til að klára verkið
Stuðningur
Reglulegir stuðnings- og spurningatímar með æfingum
Vistað
Þú hefur aðgang að námsefninu eftir að námskeiðinu lýkur ef þú vilt rifja upp þegar þú ferð að skrifa næstu bók
Um leiðbeinanda
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Sif Traustadóttir, rithöfundur, líffræðingur og dýralæknir. Sif skrifaði og gaf út sína fyrstu bók árið 2011 og seldist hún upp. Hún fékk eftir þetta brennandi áhuga á skrifum og stýrði Ritsmiðju Reykjavíkur þar til hún flutti til Ítalíu árið 2015. Í maí 2023 gaf hún út fyrsta smásagnaheftið með sögum eftir þátttakendur í ristmiðjunni “Skrif með Sif”, annað bindi kom út í desember 2023 og hið þriðja er á leiðinni og kemur út vorið 2024. Sif hefur sjálf tekið þátt í mörgum námskeiðum og sótt ráðstefnur um ritlist og bókaútgáfu, bæði á Íslandi og erlendis. Hún brennur fyrir því að höfundar hugi að ferli sínum eins og fyrirtæki og nýti sér öll tækifæri, ekki bara að gefa út í gegnum hefðbundin bókaforlög, heldur einnig að gefa út sjálf og stjórna öllu útgáfuferlinu. Sif er einnig sjálf að skrifa bæði smásögur og núna skáldsögu.

Umsagnir nemenda
Heyrðu hvað fyrri nemendur á námskeiðinu "Bók kemur í heiminn" hafa að segja um sína upplifun.
“Ég mæli mjög mikið með að fara á námskeiðið Bók kemur í heiminn því hún Sif er svo flottur kennari og er ég henni mjög þakklát fyrir allt. Hún útskýrir allt svo vel og því er allt í lagi að vita ekkert um neitt í upphafi námskeiðs því þú munt vita helling þegar námskeiðinu lýkur. Hún fer yfir allt ferlið frá uppsetningu handrits að sölu bóka. Svo hvetur hún okkur svo áfram að sjálfstraustið eykst og óttinn við mistök minnkar! Að taka þátt í þessu námskeiði gefur þér líka tækifæri til að kynnast öðrum sem eru á sama stað og þú."
Bára Daníelsdóttir
Skrifstofustjóri og höfundur
“Það er alveg ómetanlegt að fá svona stuðning og hvatningu. Ég er búin að vera að tala um að skrifa bók og hugsa um það enn lengur. En mér fannst það alltaf of yfirþyrmandi. Ég missti fókusinn áður en ég náði einu sinni að byrja eða komast áleiðis. En á þessu námskeiði varð það að hæfilega stórri áskorun. Og núna sé ég að ég get alveg skrifað bók. Þær verða örugglega fleiri fyrst ég er byrjuð. Ég get heilshugar mælt með Sif sem leiðbeinanda og með þessu námskeiði."
Guðrún Arnalds
Jógakennari og höfundur
“Ef þú ert ein af þeim sem ert búin að hugsa um að skrifa bók í mörg ár en ekki tekist það, þá verður þú að fara á námskeiðið hjá Sif. Á námskeiðinu lærði ég svo margt nýtt sem kveikti og viðhélt áhuga mínum að á skrifa loksins um efnið sem ég er búin að vera með í maganum í áratug. Á þessu námskeiði náði ég að skrifa fyrsta draft að bókinni minni. Núna er þetta loksins að gerast hjá mér og ég get ekki beðið eftir að bókin mín komi út!”
Gyða Guðjónsdóttir
Stærðfræðikennari og höfundur
CONTENT SECTION
Höfundaskólinn
Námið þar sem þú lærir að skrifa
og gefa út bæði smásögu og þína eigin bók.
Nú þegar hafa tíu nemendur Höfundaskólans gefið út bækur og sex þeirra kynntu bækur sínar á Bókamessu Höfundaskólans fyrir fullu húsi 30. ágúst síðastliðinn.
Flestir nemendur byrjuðu á því að skrifa smásögu og héldu svo áfram í að skrifa handrit að bók og svo læra að gefa bókina út, ásamt markaðssetningu og sölu.
Áhersla er lögð á að nemendur komi frá sér útgefnu verki sem er í sömu gæðum og bók sem gefin er út af forlagi. Einnig er kennd markaðssetning og sala með það að markmiði að nemendur geti haft tekjur af bókaútgáfu sinni en tekjumöguleikar höfunda eru mun hærri með sjálfsútgáfu en með hefðbundinni útgáfu í gegnum bókaforlag.
Hægt er að skrá sig á stakar einingar í Höfundaskólanum en hagstæðast er að taka allan pakkann og taka allar þrjár einingarnar.
Smásaga
"Sögurnar okkar"
Á námskeiðinu er lögð áhersla á óhefta tjáningu í rituðu máli. Þátttakendur læra að takast á við og yfirvinna ritstíflur, koma sér í gang með skrifin og ljúka við lítið ritlistarverkefni (smásögu). Jafnframt er í kennslunni farið yfir hefðbundna uppbyggingu smásögu, hvernig hægt er að fá og nota innblástur að sögum og hvernig hægt er að forðast algeng mistök við skrifin. Þátttakendur skila inn verkefnum og fá endurgjöf frá leiðbeinanda og öðrum nemendum. Að lokum er fræðsla um útgáfuferli bóka.
Bókarskrif
"Bók kemur í heiminn"
Ég leiði þig í gegnum öll skrefin frá undirbúningi til að klára fyrsta handrit að bókinni þinni á 90 dögum. Þú lærir að skrifa handrit að bók sem er áhugaverð og skemmtileg aflestrar.
Farið er yfir hvernig þú skrifar áhugaverðar persónur, skrifar hrífandi lýsingar og byggir upp sterkan söguþráð. Einnig eru leiðbeiningar fyrir skrif á bókum sem ekki eru skáldverk, til dæmis ævisögur, handbækur og barnabækur. Boðið er upp á að fá endurgjöf á kafla úr bókinni, aðhald við skrifin og svör við öllum spurningum sem koma upp á námstímanum.
Útgáfa, sala og markaðssetning
"Höfundaþjóðin"
Þegar handritið er fullbúið þarf að brjóta það um og hanna bókakápu. Þú lærir að gera einfalda bókakápu og vinna með hönnuði til að fá það útlit sem þú vilt á bókina þína. Þú lærir á algengustu forrit sem notuð eru til að brjóta um bækur fyrir rafbók og prentun. Þú gefur út bókina þína á Amazon og eigin heimasíðu og lætur prenta eintök til að selja. Eftir að þú hefur gefið út bók á eigin vegum getur þessi bók verið þér uppspretta tekna ævilangt! Þú lærir að selja og markaðssetja bókina þína til að hámarka tekjur af útgáfunni. Ef þú vilt getur þú stofnað fyrirtæki um þína útgáfustarfsemi og orðið rithöfundur að atvinnu.
Verð
ATH. Þar sem Sif býr á Ítalíu eru öll verð í evrum en hægt er að greiða með millifærslu á íslenskan reikning ef greitt er með eingreiðslu (ekki greiðsludreifing).
Hafið samband í info(hja)nordiccreativewriting.com fyrir nánari upplýsingar

© Copyright Sif Traustadóttir. All Rights Reserved.